flugfréttir
Júmbó-þota Delta mikið skemmd eftir haglél á leið til Seoul
- Kínverskir flugumferðarstjórar gáfu ekki leyfi til að fljúga framhjá óveðrinu
Júmbó-þota frá Delta Air Lines gæti mögulega verið ónýt eftir að hún flaug gegnum gríðarlegt haglél og mikla ókyrrð er hún var yfir Kína á leið til Seoul í Suður-Kóreu þann 17. júní sl.
Vélin lenti þar eftir flug frá Detroit en síðan þá hefur hún verið úr umferð en á meðfylgjandi myndum má sjá skemmdir á trjónu eftir stór högl sem einnig götuðu stél vélarinnar og vængi.
Einn farþegi sem var um borð í vélinni sagði að farþegarýmið hafi verið í rúst eftir þá ókyrrð sem vélin flaug í gegnum þar sem farþegar köstuðu upp, fleygðust til úr sætum sínum auk þess sem farangur féll úr handfarangurshólfum.
Flugmenn vélarinnar fóru fram á leyfi til að taka á sig krók framhjá óveðrinu en flugumferðarstjórar í Kína höfnuðu þeirri beiðni höfðu þar sem þeir hafa ekki leyfi til þess að láta vélar fara langt frá flugleiðum fyrir farþegaþotur inn á önnur svæði sem annars tilheyra kínverska flughernum.
Vélin sem um ræðir er af gerðinni Boeing 747-400 og er vélin 26 ára gömul en hún flaug fyrst þann 4. apríl árið 1989.
Mörg göt komu á vænginn á vélinni eins og sjá má á mynd sem birtist á Instagram
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.