flugfréttir
Icelandair mun auka tíðni til Seattle næsta vor
- Munu fljúga 11 sinnum í viku til SEA
Boeing 757-200 vél Icelandair í lendingu á Seattle-Tacoma
Icelandair ætlar að fjölga flugferðum til Seattle og auka tíðnina úr átta flugferðum á viku upp í 11 flugferðir frá og með 5. maí árið 2016.
Icelandair er með þessu að koma á móts við aukna eftirspurn eftir flugi til norðvesturhluta Bandaríkjanna
og munu m.a. bætast við morgunflug frá Seattle sem mun bjóða Bandaríkjamönnum upp á aukna möguleika til að halda áfram til Evrópu.
Einnig munu opnast tækifæri fyrir Íslendinga og evrópska ferðamenn til að ná flugi beint áfram til borga gegnum Seattle á borð við Anchorage, Billings, Boise, Eugene, Fairbanks, Spokane, Portland, Calgary auk fleiri staða með Alaska Airlines.
Kazue Ishiwata hjá Seatle-Tacoma, segir að Icelandair sé meðal þeirra flugfélaga á flugvellinum sem hafi notið mikilla vinsælda frá því félagið hóf flug til SEA árið 2009.
"Tengiflugvöllurinn í miðju Atlantshafi hefur fært okkur mikla möguleika þar sem farþegar koma og halda áfram með öðrum flugfélögum hérna í Seattle auk farþega sem hafa getað flogið til áfangastaða í Evrópu á markað sem var erfitt fyrir okkur að ná til", segir Ishiwata.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.