flugfréttir

Danskur dómstóll gefur leyfi til að neita Ryanair um afgreiðslu á vélum á CPH

- Verkfall yfirvofandi ef danskt starfsfólk fær ekki danska kjarasamninga

2. júlí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 07:25

Boeing 737-800 vél Ryanair á flugvellinum í Kaupmannahöfn

Ryanair ætlar að hætta við áform sín um að gera flugvöllinn í Kaupmannahöfn að einni af bækistöðvum sínum eftir dóm sem féll við réttarhöld í gær í Danmörku gegn félaginu.

Dönsk verkalýðsfélög leituðu í vor til Arbejdsretten vegna reiði yfir stefnu Ryanair um að meina dönskum flugmönnum og áhöfnum að njóta danskra kjarasamninga í stað þess að lúta að írskum verkalýðsreglum.

Starfsemi Ryanair hefur verið gagnrýnd frá því félagið hóf flug um Kaupmannahöfn af dönskum starfsmönnum í verkalýðsfélaginu FPU sem létu reyna á það hvort að flugvallarstarfsmenn gætu lagalega hunsað að afgreiða vélar Ryanair ef félagið verður ekki við kröfum um danska kjarasamninga.

Niðurstöður Arbejdsretten er sú að svo lengi sem Ryanair vill ekki ganga frá kjarasamningum við starfsmenn á flugvellinum samkvæmt dönskum lögum sé starfsmönnum flugvallarins heimild að fara í verkfall gegn félaginu og neita að setja eldsneyti á vélarnar, sjá um þrif og farangur auk annarrar þjónustu.

Talið er að verkfall sé yfirvofandi fyrir Ryanair í Kaupmannahöfn en dómsúrskurðurinn gefur einnig öðrum verkalýðsfélögum leyfi til að fara í samúðarverkfall til að koma í veg fyrir að vélar Ryanair fái þjónustu á flugvellinum.

Verkalýðsfélögin hafa gefið Ryanair þriggja vikna frest til þess að gera kjarasamning við danska starfsmenn áður en flugvallarstarfsmenn gætu neitað að afgreiða vélarnar þegar mesti háannatími sumarsins gengur í hönd.

Ryanair mun því ekki geta haft flugvélar sínar staðsettar í Kaupmannahöfn en félagið mun fljúga áfram frá flugvellinum til áfangastaða með því að nota vélar sem eru staðsettar í öðrum löndum.

Ryanair ætlar að áfrýja dómnum en í augnarblikinu hefur félagið eina vél sem er staðsett á Kaupmannahafnarflugvellinum sem skiptist á að fljúga til Varsjá, Dublin, London Luton og Mílanó.

"Við höfum beðið lögfræðinga okkar að áfrýja dómnum sem augljóslega leyfir verkalýðsfélögum þeirra sem starfa hjá samkeppnisflugfélögunum að hindra afgreiðslu á þeirri einu vél sem við höfum í Kaupmannahöfn", segir talsmaður Ryanair.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga