flugfréttir

Flugstjóri TransAsia vélarinnar drap á röngum hreyfli

2. júlí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 13:31

Flugslysið náðist m.a. á mælaborðsmyndavél í bíl sem var á brúnni

Talið er að flugstjóri ATR 72-600 vélarinnar frá TransAsia Airways, sem hrapaði á brú og brotlenti í í Taívan þann 4. febrúar á þessu ári, hafi drepið á röngum hreyfli sem varð til þess að vélin fórst í stað þess að drepa á þeim hreyfli sem hafði bilað eftir flugtakið.

Þetta kemur fram í frumskýrslu frá taívönsku rannsóknarnefndinni sem tekur einnig fram að flugstjórinn, Liao Jian-zong, hafi ekki staðist þjáflun í maí 2014 varðandi viðbrögð ef eldur kemur upp í hreyfli skömmu eftir flugtak.

“Wow, pulled back the wrong side throttle”, má heyra m.a. í upptöku úr hljóðrita vélarinnar sem náðist úr flakinu en 43 manns létu lífið í flugslysinu en 15 komust lífs af.

Fyrr í upptökunni má heyra að ruglingur kom upp meðal flugmannanna tveggja á meðan þeir reyndu að ná aftur stjórn á vélinni eftir að annar hreyfillinn bilaði eftir flugtak - Liao tekur því næst aflið af þeim eina hreyfla sem var í lagi og voru örlög vélarinnar því ráðin.

Liao gerir sér grein fyrir mistökunum sem hann gerði og reynir að setja fullt afl aftur á hreyfilinn og má heyra þriðja flugmanninn, sem var einnig í stjórnklefanum sem flugnemi, segja: “Impact, impact, brace for impact.”.

Liao Jian-zong var fyrrum herflugmaður og byrjaði hann að fljúga farþegaþotum árið 2009 og var hann ráðinn til starfa til TransAsia Airways árið 2010 og gerður að flugstjóra í ágúst í fyrra.

Þrátt fyrir að hafa ekki staðist þjálfun á flughermi í maí 2014 náði hann prófinu í júní áður en hann var gerður að flugstjóra en í skýrslum kemur fram að hann hafi átt í áframhaldandi erfiðleikum við að ná tökum á þjálfun í flughermi síðar um sumarið í fyrra er snéru að viðbrögðum og neyðartilvikum.

Drög að lokaskýrslu um flugslysið mun verða birt í nóvember og lokaskýrslan mun koma út í apríl 2016.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga