flugfréttir
Cargolux hefur reglubundið fraktflug til Turkmenistan
Fyrsta flug Cargolux lendir á flugvellinum í Turkmenbashi
Cargolux hefur hafið reglubundið fraktflug til Turkmenistan eða nánar tiltekið til borgarinnar Turkmenbashi og verður flogið fjórum sinnum í viku.
Flugið kemur í kjölfars sáttmála sem Turkmenistan og Lúxemborg gerðu sín á milli en fyrsta flugið var flogið með Boeing 747-400F vél sem flaug frá Hong Kong til Lúxemborg með viðkomu í Turkmenbashi og Búdapest.
Flugvöllurinn í Turkmenbashi (einnig þekktur sem Krasnovodsk Airport) er annar stærsti flugvöllurinn í landinu og stendur hann við Kaspíahaf en Turkmenistan Airlines er eina farþegaflugfélagið sem flýgur um völlinn.
Flugvöllurinn býr m.a. yfir sérstakri sjálfsafgreiðsluþjónustu á lestun á frakt auk þess sem nýtt eldsneytiskerfi hefur verið tekið í notkun þar sem hægt er að fylla á átta þotur í einu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.