flugfréttir
Ný flugstöð mun opna á flugvellinum í Munchen vorið 2016
Frá framkvæmdunum á Terminal 2 satellite flugstöðinni
Ný flugstöð mun rísa á flugvellinum í Munchen í apríl 2016 sem mun standa sér á parti og hafa pláss fyrir 27 flugvélar.
Lufthansa og flugrekstraraðilinn Flughafen München tilkynntu þetta í dag en flugstöðin verður sú fyrsta í Þýskalandi sem mun verða „eyja“ á miðjum flugvelli.
Munchen er næststærsti tengiflugvöllur Lufthansa á eftir Frankfurt en fyrsta Airbus A350-900 vél félagsins mun verða staðsett í Munchen og fljúga þaðan til fjarlægra áfangastaða.
Verktakar munu klára að innrétta flugstöðina á næstu mánuðum og koma fyrir tækjum og búnaði fyrir starfsemina en á næsta ári verða nokkur hundruð sjálfboðaliðar fengnir til að taka þátt í tilraunum áður en flugstöðin opnar.
Flugvöllurinn í Munchen er sjöundi stærsti flugvöllur Evrópu og fara um 39,7 milljónir farþega um hann á ári en Munchen-flugvöllurinn mun geta tekið á móti 11 milljónum farþegum til viðbótar þegar flugstöðin verður tekin í notkun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.