flugfréttir
Hvað er þetta litla gula á vængnum?
Þeir sem sitja við gluggann við vænginn á Airbus A320 ættu að koma auga á þennan litla hlut
Það eru ýmsir hlutir á flugvélum sem ekki allir taka endilega eftir en ef maður gefur þeim gaum þá vakna oft spurningar á borð við „Hvað er þetta og hvað gerir þetta?“
Á Airbus A320 vélum má t.a.m. sjá lítið gult stykki í miðjum vængnum með götum, einskonar festingar sem minna helst á liggjandi bókstafinn B, sem eru yfirleitt skærgult á litinn.
Slíkar festingar eru einnig að finna á mörgum öðrum vélum en þó ekki öllum en á vængjum á Boeing 737 vélum er festingin minna áberandi og aðeins með einu gati.
Sýnishorn úr öryggisleiðbeiningum um borð í Boeing 737-800
Tilgangurinn með þessum festingum er til að krækja björgunarlínu og festa í vænginn eftir nauðlendingu t.a.m á vatni en í karminum á hverjum neyðarútgangi yfir væng á A320, A319 og A321 má finna reipi sem hægt er að toga í og er ætlast til þess að hún sé fest niður í gulu festingarnar á vængfletinum.
Þegar verið er að rýma vélina á vatni geta farþegar haldið sig í línuna þegar þeir fara út á vænginn á meðan beðið er eftir hjálp eða til að styðja sig við þegar farið er um borð í björgunarbát.
Öryggisreglur varðandi björgunarlínuna og rýmingu á flugvélum á vatni eru þó mismunandi eftir flugfélögum en sum flugfélög, sem fljúga ekki yfir sjó, fara eftir öðruvísi reglum varðandi rýmingu.
Fæstar áhafnir segja þó frá hvernig á að festa björgunarlínuna í vænginn þegar verið er að fara yfir öryggisatriði um borð fyrir flugtak en sum flugfélög sína hvernig það er gert á spjaldinu með öryggisleiðbeiningarnar sem eru að finna í sætisvasanum.
Á Netinu má finna umræður þar sem fólk er að spyrjast fyrir um þetta "litla gula" dót á vængnum en sumir hafa giskað á að hér sé um að ræða festingar til að krækja í þegar verið er að skipta um væng á flugvél og aðrir hafa giskað á að þetta sé til að festa flugvél niður á flugvelli í miklu hvassviðri.
Festingarnar á væng á Boeing 737-800
Úr leiðbeningarbók fyrir þjálfun flugliða á Boeing 737
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.