flugfréttir
Solar Impulse slær nýtt met eftir flug yfir Kyrrahafið til Hawaii
Solar Impulse nálgast Hawaii í gær
Sólarflýgildið Solar Impulse 2 sló heimsmet í gær er vélin lenti á Hawaii-eyjum eftir sögulegt 7.200 kílómetra beint flug frá Japan eftir 118 klukkutíma langt flug yfir hálft Kyrrahafið.
Þetta er lengsta flug sem flugvél hefur flogið sem einungis er knúin áfram fyrir sólarorku og var þar með slegið 76 klukkutíma met sem Bandaríkjamaðurinn Steve Fossett sló árið 2006.
Annar Svisslendingurinn, sem stendur að baki sólknúna fluginu, Andre Borschberg, sagði að hann hefði verið furðulega hress eftir þetta langa flug og hafi hann ekki fundið fyrir svo mikilli þreytu.
Bertrand Piccard og André Borschberg skiptast á að fljúga
Solar Impulse 2
Borschberg hitti félaga sinn, Bertrand Piccard, við komuna til Kalaeloa á Hawaii sem einnig flýgur vélinni en aðeins einn getur flogið henni hverju sinni en þeir skiptast á að fljúga Solar Impulse kringum jörðina.
Piccard mun fljúga næstu ferð sem verður frá Hawaii til Phoenix í Ariozona en gert er ráð fyrir að það flug muni taka fjóra daga en frá Phoenix mun flýgildið fljúga til New York.
Boðskapur hnattflugs Solar Impulse er að vekja athygli á umhverfisvænu flugi og þeim möguleikum sem sólarorkan býður upp á.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.