flugfréttir
Sagan um „Bitching Betty“ - Raddirnar í stjórnklefanum sem vara flugmenn við
Nokkrar konur hafa gengt hlutverki Bettýjar í gegnum árin
Í stjórnklefanum á flestöllum flugvélum, bæði í farþega- og fraktflugi má heyra raddir sem vara flugmenn við aðstæðum af ýmsum toga og láta þá vera meðvitaða um ýmis atriði en fyrstu raddskilaboðin voru notuð í herflugvélum og orrustuþotum.
"Minimums.... one hundred. Fifty, forty, thirty, twentie, ten...." er t.a.m. niðurtalning sem telur niður síðustu fetin þegar flugvél er að koma inn til lendingar en fjöldi annarra viðvarana koma frá mismunandi tækjum sem kallast nokkrum nöfnum sem er breytilegt eftir flugvélaframleiðanda.
Raddirnar frá viðvörunarkerfinu hjá Boeing koma frá GPWS/EGPWS (Ground Proximity Warning System), sambærilegt kerfi hjá Airbus kallast Flight Warning Computer og á McDonnell Douglas vélum kallast það Central Aural Warning System (CAWS) en önnur kerfi sem nota einnig raddir fyrir viðvaranir eru TCAS (Traffic Collision Avoidance System.
Karlmannsrödd má heyra í öllum á Boeing og Airbus-vélum í dag en karlmannsröddin hefur oft verið köllið "Barking Bob" eða "Bitching Bob" en í upphafi var kvenmannsrödd notuð sem flugmann hafa í gegnum tíðina kallað "Bitching Betty".
PULL UP viðvörun frá EGPWS á Boeing 737
Eins og nokkrir leikarar hafa leikið James Bond þá eru nokkrar konur sem hafa fengið hlutverki "Bitching Betty" en sú fyrsta var leikkonan Kim Crow en hún las inn á viðvörunarkerfi m.a. fyrir orrustuþotur á borð við F-16, F-18, og F-15 auk farþegaþotna. - (windshear windshear, maintain vertical speed, too fast, sink rate).
Töldu að flugmenn myndi frekar taka mark á kvenmannsröddin
Fyrst þegar ákveðið var að láta raddir segja áríðandi skilaboð í stjórnklefa fyrir mörgum áratugum síðan var fyrst notast við kvenmannsraddir sem var talið betra þar sem hún myndi veita herflugmönnum meiri öryggistilfinningu auk þess sem haldið var því fram að þeir myndu frekar taka mark á kvenmannsrödd í stað þess að hlusta á karlmann en breski flughermenn t.a.m. kölluðu kvenmannsröddina, "Nagging Nora" en "Bitching Betty" er einnig að finna á DC-9, MD-80 og MD-11, DC-10 og fleiri vélum.
Flugstjóri Lufthansa Cargo segir frá Bitching Betty
Einnig var talið að kvenmannsröddin væri betri þar sem hún myndi skera sig frá þeim karlsmannsröddum sem voru í gangi í samskiptum við flugumferðarstjóra en síðar kom í ljós að ekki skipti máli hvort að viðvörun sé kvenmannsrödd eða karlmannsrödd.
Ein sagan segir að þegar konur fóru að sækja í flugið var talið að þær myndu ekki vilja heyra kvenmann segja sér fyrir verkum og þá var ákveðið að skipta yfir í karlmannsrödd en þá kom "Barking Bob" til sögunnar sem er karlmannsröddin í Boeing og Airbus-vélunum.
Nýrri Airbus-vélar hafa þó breskan hreim um borð í stjórnklefanum á A320, A330, A340, A350 auk risaþotunnar A380 en franskan hreim var þó hægt að heyra í eldri vélum eins og A300, A310 og fyrstu Airbus A320 vélunum sem gæti hafa farið í taugarnar á Bretunum.
Flugstjóri hjá Lufthansa Cargo segir að fyrir mörgum árum síðan hafi farið fram inntökupróf þar sem var auglýst eftir konum með góðar raddir til að koma í prufur fyrir nýja "Bitching Betty".
Patricia Hoyt, ásamt Jodie Foster í Boeing-deildinni í Long Beach
Ein kona, sem starfaði sem flugverkfræðingur hjá Boeing/McDonnell Douglas í Long Beach í Kaliforníu, þótti með afburða góða rödd og var hún ein af þeim konum sem hafa lesið fyrir "Bitching Betty" en sú heitir Patricia Hoy og starfar hún enn hjá Boeing í dag.
Patricia Hoy var meðal annars fengin til að leiðbeina leikkonunni Jodie Foster fyrir hlutverkið í kvikmyndinni Flightplan þar sem hún lék flugvélahönnuð sem kom að framleiðslu á stærstu þotu í heimi sem hún flaug sjálf með þar sem ung dóttir hennar hvarf skyndilega um borð í vélinni með dularfullum hætti.
Röddin hennar var stundum það síðasta sem flugmenn heyrðu áður en þeir dóu
Á tímabili var farið að leita að nýrri konu til að vera "Bitching Betty" en flugmenn voru mjög ósáttir við það og sögðu "Þetta er ekki okkar Betty" - Komið var til móts við þeirra ósk og Crow starfaði áfram við að lesa inn viðvaranir næsta áratuginn eftir það.
Flugmenn segja að Kim Clowe sé alltaf hin eina og sanna "Bitching Betty" en hún þekkir sumar aðrar Bettýarnar vel persónulega
Kim Crow segir í viðtali að því miður þá séu nokkur tilvik þar sem röddin hennar var það síðasta sem flugmenn heyrðu áður en þeir kvöddu þennan heim en hún las til að mynda inn á viðvörun um borð í geimferjunni Challenger hjá bandarísku geimferðarstofnunninni NASA sem fórst árið 1986 auk annarra geimferja en einnig má heyra raddir hennar í stjórnklefum á orrustuþotum af gerðinni Harrier og Hornets.
Á McDonnell Douglas MD-11 vélunum er bæði kvenmannsrödd og karlamannsrödd. Kvenmannsröddin segir flestar almennar viðvaranir og skilaboð en karlamannsröddin tekur við ef mjög mikil hætta steðjar að á borð við: "Too Low - Terrain - Pull Up".
Kim Crow segir það mikinn heiður að hafa fengið að tala við flugmenn óbeint víða um heim. Allir þekkja röddina hennar en ekki allir vita hver hún er en það komi fyrir að hún sé beðin um að segja "Sink rate - Pull up" og fleiri orð úr stjórnklefanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.