flugfréttir
Lufthansa kemur fyrir búnaði sem dregur úr hávaða frá A320 og MD-11F
Deflectorinn verður festur fyrir framan gat undir vængnum sem jafnar út þrýsting í eldsneytistönkum vélarinnar
Lufthansa Technik vinnur nú að því að gera Airbus A320 vélar Lufthansa hljóðlátari með því að koma fyrir sérstökum búnaði undir vængi vélanna sem mun draga úr hávaða er þær eru í aðflugi.
Um er að ræða einskonar „flautandi“ hljóði sem heyrist gjarnan frá jörðu niðri er vélarnar eru á lágum hraða í aðflugi að flugvelli en búnaðurinn, sem nefnist "deflectors" á ensku, verður staðsettur við hringlaga gat undir vængnum og mun hann beina loftflæðinu frá gatinu til að koma í veg fyrir flautið.
Nýlega var búnaðurinn settur undir vængina á hundruðustu A320 vélinni í flota Lufthansa en til stendur að gera það við allar þær 157 vélar sem eru í flota félagsins af þessari gerð en þess má geta að Air France hefur einnig unnið að því að koma búnaðinum fyrir undir sínum A320 vélum.
Nýjar Airbus A320 vélar koma með þessum búnaði sem var kynntur fyrst til sögunnar í nóvember í fyrra.
Þá mun samskonar búnaður verða settur á McDonnell Douglas MD-11F frakvélar Lufthansa Cargo í þeim tilgangi að draga úr hvíni en tvær vélar munu framkvæma tilraunaflug yfir Magdeburg-Cochstedt flugvellinum en þeim búnaði verður komið fyrir í CF6-80C2 hreyflunum á vélunum og einnig búnaði í hjólarými til að draga úr hávaða sem kemur frá hjólastellinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.