flugfréttir
Leitað að fjárfestum til að kaupa hlut í Brandenburg-flugvellinum
Ekkert áætlunarflug hefur farið um Brandenburg-flugvöllin frá því smíði hans lauk
Flugvallaryfirvöld í Berlín leita nú eftir einkafjárfestum til að koma með fjármagn inn í nýja Brandenburg-flugvöllinn sem smíðaður hefur verið en opnun vallarins hefur mörgum sinnum verið frestað en upphaflega stóð til að opna völlinn árið 2012.
Sagt er að búið sé að bjóða fjárfestum á borð við Macquarie Group og JP Morgan að kaupa hlut í flugvellinum og sé búið að úthluta þeim ítarlega viðskiptaáætlun svo þeir geti komið með fast tilboð
en ekki kemur fram hvort til standi að einkavæða rekstur vallarins.
Kostnaðurinn við Brandenburg-flugvöllinn er komin upp í 747 milljarða króna en fjölmörg atriði og ýmsa galla þarf að lagfæra sem hefur orðið til þess að völlurinn mun ekki opna fyrr en í fyrsta lagi árið 2017 en flugvöllurinn er í eigu Berlínarborgar, bæjarstjórn Brandenburgar og þýska ríkisins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.