flugfréttir
NASA keypti þrjár gamlar Cessnur til að brotlenda þeim í tilraunum
- Prófanir leiða í ljós að ELT (emergency locator transmitter) virkar ekki alltaf
Neyðarendar (ELT) virka ekki í öllum tilvikum og ætlar NASA að koma með leið til að bæta úr því
Bandaríska geimferðarstofnunin NASA keypti þrjár gamlar Cessnum á dögunum í þeim tilgangi að brotlenda þeim vegna tilrauna sem fara fram með ELT neyðarsendinn (emergency locator transmitter).
Neyðarsendar eiga að senda neyðarboð sjálfkrafa til gervitungls í kjölfar flugslyss en í mörgum tilvikum hafa þeir ekki virkað vegna ýmissa atriða sem hafa farið úrskeiðis.
NASA vinnur nú að því að betrumbæta tæknina bak við neyðarsendinn en ekki hefur verið gefið upp hvaða hlutverki geimferðarstofnunin gegnir í tilraununum.
NASA notaði þrjár gamlar Cessna 172 vélar sem komu með fjórum nýjum neyðarsendum og voru gerðar prófanir á því hvort þeir myndu þola högg, eld eða annað álag við flugslysið en vélarnar voru látnir falla úr 24 metra hæð og var brotlendingunni stjórnað með taugum auk nets sem tók við vélinni eftir höggið.
"Flugslysin" voru sett á svið nálægt Langley í Virginíu og voru 64 skynjarar sem voru notaðir í tilrauninni og þá voru 40 myndavélum voru komið fyrir bæði inn í vélunum og á jörðu niðri.
Í ljós kom að aðeins einn neyðarsendir sendi boð á innan við 50 sekúndum á meðan hinir tóku við sér skömmu síðar en NASA mun núna fara í að finna út úr því hvers vegna hinir sendarnir virkuðu ekki eins og þeir áttu að gera og munu fleiri tilraunir fylgja í kjölfarið.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.