flugfréttir

Margvísleg mistök talin hafa orsakað Air Algerie flugslysið í Malí í fyrrasumar

6. júlí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 18:32

MD-83 vélin fórst um 40 mínútum eftir flugtak frá Ouagadougou í Burkína Fasó á leið til Ageirsborgar.

Margvísleg mistök eru talin hafa ollið flugslysinu er McDonnell Douglas MD-83 vél spænska flugfélagsins Swift Air fórst í eyðimörk í Malí þann 24. júlí 2014 á leið sinni frá Ouagadougou í Burkína Fasó til Algeirsborgar en vélin var að fljúga fyrir Air Algerie er hún hvarf af ratsjá.

Þetta segir saksóknari í Frakklandi sem hefur komið að rannsókn slyssins sem segir að meginorsökina megi rekja til þess að gleymst hafði að virkja afísingarbúnað í hreyflum vélarinnar en af þeim 116 sem létu lífið voru 54 Frakkar en enginn komst lífs af.

Franska flugslysanefndin (BEA) sagði í apríl í vor að sennilega hafi rangar upplýsingar um þrýstingshlutfall á báðum hreyflunum komið fram rétt eftir að vélin var komin upp í 31.000 fet sem olli því að tölvubúnaður, sem stjórnar hreyflunum, fékk misvísandi upplýsingar frá skynjurum sem hafa sennilega frosið þar sem afísingin var ekki virkjuð.

Flak vélarinnar í eyðimörkinni í Malí

Þar sem hreyflatölvan var að fá rangar upplýsingar minnkaði aflið á hreyflana sem varð til þess að verulega dró úr farflugshraðanum sem varð til þess að vélin fór að ofrísa.

Þá segir saksóknari að flugstjóri vélarinnar hefði gert mistök með því að reyna að hækka flugið þegar hann ætlaði að ná stjórn á vélinni í stað þess að dýfa henni niður.

Þá er einnig sagt að flugmennirnir hefðu ekki hlotið þjálfun á flughermi sem væri nákvæmlega eins og McDonnell Douglas MD-83 vélin en ofan á það höfðu þeir enga reynslu á því að fljúga í því sérstaka veðurfari sem ríkir á þessum slóðum í Afríku.

Þá kom einnig í ljós að flugstjórinn, sem var spænskur, kunni ekki frönsku sem var það tungumál sem flugumferðarstjórarnir töluðu. Franska flugslysanefndin mun birta lokaskýrsluna um flugslysið fyrir lok ársins.









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga