flugfréttir

70 ár í dag frá upphafi millilandaflugs á Íslandi

- Fyrsta farþegaflugið út fyrir landsteinanna var flogið til Skotlands og til baka

11. júlí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 10:27

Á myndinni sem fylgir er TF-ISP, Catalina flugbáturinn sem notaður var til þessa fyrsta farþegaflugs íslensks flugfélags.

Í dag, 11. júlí, eru 70 ár frá því að farþegaflug milli Íslands og annarra landa hófst en Icelandair mun minnast þessara tímamóta í sögu félagsins með ýmsum hætti í sumar, og í lok ágúst verður sérstök athöfn í Skotlandi en þangað var fyrsta farþegaflugið farið, eftir lok síðari heimstyrjaldarinnar, sumarið 1945.

Forystumenn bæði Flugfélags Íslands og Loftleiða, forvera Icelandair, höfðu keypt flugbáta á árinu á undan í Bandaríkjunum með það í huga að hefja flug til annarra landa. Loftleiðamenn keyptu Grumman-flugbát og Flugfélagsmenn Catalina-flugbát og á þeim flugvélum var flogið til að byrja með. En segja má að fyrsta raunverulega millilandaflugvél Íslendinga hafi verið hin 46 farþega Douglas DC-4 Skymaster, sem ýmist var kölluð Hekla eða „Fjarkinn“, en Lofleiðir hófu rekstur hennar 1947.

Frétt úr Morgunblaðinu árið 1945 um Grumman-flugbátinn

„Saga flugsins og saga Icelandair er saga mikilla breytinga fyrir íslensku þjóðina á undanförnum áratugum. Það voru merkir frumkvöðlar sem lögðu grunninn að þessari atvinnugrein og við leggjum okkur fram við að halda merki þeirra á lofti með kraftmiklu starfi, sem byggir þeirri miklu sérþekkingu og menntun sem orðið hefur til hér á landi í öllu sem viðkemur flugrekstri“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.

Í bókinni Fimmtíu flogin ár - atvinnuflugsaga Íslands 1937-1987 eftir Steinar J. Lúðvíksson og Svein Sæmundsson segir um þetta fyrsta farþegaflug milli landa:

Flugið til Skotlands tók sex klukkustundir

Fjórir farþegar - 11. júlí 1945

Í morgun lagði Catalina flugbátur Flugfélags Íslands af stað frá Reykjavík til Skotlands. Flugbáturinn, sem ber einkennisstafina TF-ISP, fór frá Skerjafirði kl. 07:27. Flugstjóri er Jóhannes R. Snorrason, flugmaður Smári Karlsson, vélamaður Sigurður Ingólfsson og loftskeytamaður Jóhann Gíslason, en auk þeirra eru tveir menn úr breska flughernum og er það að kröfu hernaðaryfirvalda.

Fjórir farþegar voru með flugvélinni, stórkaupmennirnir Hans Þórðarson, Jón Jóhannesson og Jón Einarsson og séra Róbert Jack. Ferðin gekk vel. Flugmenn höfðu mótvind nokkurn hluta leiðarinnar en lentu í Largs Bay eftir sex klukkustunda og fjögurra mínútna flug. Þegar flugvélin var lent stóðu farþegar upp og hrópuðu ferfalt húrra fyrir flugmönnunum.

Viðstaða í Skotlandi varð ekki löng. Morguninn eftir snéri flugvélin aftur til Íslands og lenti á Skerjafirðinum við Reykjavík kl. 17:00 Flugið til Íslands hafði tekið sex klukkustundir. Engir farþegar voru til Íslands, en vel var tekið á móti áhöfninni úr þessu fyrsta farþegaflugi íslendinga milli landa.

Við komuna upplýsti Örn Ó. Johnson að félagið hefði fengið leyfi til þriggja reynsluferða til Skotlands þetta sumar og að ákveðið væri að fara þær á næstunni. Enn fremur hefði verið sótt um leyfi til Danmerkurflugs, en svar væri ókomið.

Flugstjórinn, Jóhannes R. Snorrason, sagði síðar frá: „Okkur var mjög vinsamlega tekið í Largs og fyrirmenn bæjarins buðu okkur til tedrykkju á fögrum stað og spurðu margra spurninga um Flugfélagið og þjóðina, sem hafði hafið millilandaflug, meðan þjóðir Evrópu voru enn að sleikja sár sín eftir ófriðinn“.

Á myndinni sem fylgir er TF-ISP, Catalina flugbáturinn sem notaður var til þessa fyrsta farþegaflugs íslensks flugfélags.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga