flugfréttir
Farþegaþota Air India kyrrsett vegna rottugangs
Vélin átti að fljúga frá Leh til Delhi þegar upp komst um rottuganginn
Airbus A320 farþegaþota frá Air India var kyrrsett í indversku borginni Leh á dögunum vegna rottugangs um borð í vélinni.
Nauðsynlegt var að svæla rotturnar í burtu og sjá til þess að þær hafi ekki ollið tjóni um borð með því að naga í sundur rafmagnsleiðslur og víra.
Ekki var neinn búnaður til rottusvælingar tiltækur í Leh og þurfti að senda slíkan búnað með næsta flugi til Leh til að gera vélina flughæfa á ný og fljúga henni til baka til Delhi.
"Rottur um borð í flugvél gætu nagað í sundur leiðslur sem tengjast fly-by-wire kerfinu og það gæti ollið stórslysi þar sem flugmenn gætu misst alla stjórn á vélinni", segir yfirmaður flugmála á Indlandi.
Algengt er að rottur geti komist um borð í farþegaþotur á Indlandi og víðar með eldhúsbílunum sem koma með matinn fyrir farþega um borð - "Eldhúsbílarnir eru eins og heimili fyrir rotturnar þar sem alltaf einhverjar matarleifar detta á gólfið".
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.