flugfréttir
Aircraft Industries kynnir næstu kynslóð af Let L-140 vélinni
Fyrsta Let-vélin var smíðuð á sjöunda áratugnum
Tékkneski flugvélaframleiðandinn Aircraft Industries hefur lokið við smíði á fyrstu NG útgáfunni af Let L-410 Turbolet flugvélinni sem nefnist L-410NG.
Vélin, sem kemur með General Electric H80 hreyflum, mun fljúga sitt fyrsta flug á næstunni frá Kunovice-flugvellinum en vélin kemur með nýrri hönnun á vængjum og viðbótar eldsneytistanki og hefur flugþol vélarinnar aukist upp í 2.500 kílómetra.
Þrátt fyrir að vélin, sem tekur 19 farþega, sé sérstaklega ætluð fyrir farþegaflug milli afskektra svæða þá segir framleiðandinn að hún henti einnig vel fyrir eftirlits- og gæsluflug en talið er að fjöldaframleiðsla á L-410NG muni hefjast árið 2017 og er stefnt á að framleiða allt að 30 vélar á ári.
Fyrsta Let L-410 vélin var smíðuð árið 1969 og hafa verið framleiddar 1.100 vélar í 15 mismunandi útgáfum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.