flugfréttir
Sólarhringsverkfall hjá Cargolux: Segja að „vinkið“ hafi verið hættulegt
- Flugmenn Cargolux segja slæmt samband stjórnarformennina
Ný Boeing 747-8F vél Cargolux vakti mikla athygli er vélin vinkaði bless í flugtaki á Paine Field
Starfsemi Cargolux lamaðist í nótt eftir að flugmenn lögðu niður vinnu en verkalýðsfélagið LCGB greip til sólarhringsverkfalls vegna óánægju flugmanna í garð stjórn félagsins varðandi stefnu þeirra í öryggismálum.
LCGB segir að stefna stjórnar Cargolux í öryggismálum fari lækkandi sökum ábyrgðarleysis hjá stjórninni og séu flugmenn að missa álitið á þeim sem stjórna rekstri félagsins vegna framkomu þeirra í garð flugmanna.
Flugmenn félagsins eru m.a. mjög ósáttir við að stjórnarformenn Cargolux í kjölfar atviks er ný Boeing 747-8F fraktvél félagsins kvaddi Paine Field flugvöllinn í Everett með því að „vinka bless“ með vængjunum eftir flugtak er hún fór í afhendingarflugið til Luxemborg í september sl. haust.
Aloyse Kapweiler, ritari LCGB, segir að flugmenn hjá Cargolux telji umrætt atvik hafa verið mjög hættulegt en flugstjórinn sem framkvæmdi „vinkið“, situr í stjórn Cargolux og hafa skapast deilur meðal flugmanna sem fóru fram á að atvikið yrði rannsakað en stjórn Cargolux neitaði því.
„Óþarfa áhættuatriði í boði stjórnar Cargolux“
Þá hefur það einnig valdið óánægju er fjórum flugmönnum var sagt upp hjá Cargolux eftir að félagið taldi þá hafa of oft tilkynnt sig veika og ekki mætt til vinnu.
Orðrómur er um að sumir flugmenn hjá Cargolux hafi óttast um að missa starfið og hafa því í sumum tilfellum ekki ekki þorað öðru en að mæta til vinnu og fljúga þótt þeir hafi verið veikir.
LCGB átti fund með stjórn Cargolux sl. föstudag og lagði til þrjár tillögur til að takast á við vandamálin til að tryggja öryggi félagsins og koma á betri samskiptum milli félagsins og flugmenn þess en stjórnarformenn Cargolux voru ekki samvinnuþýðir og neituðu þeim tillögum.
Einn flugstjóri, sem flýgur sjálfur bæði Boeing 747-400 og Boeing 747-8, segir að þarna hefði eitthvað getað farið úrskeiðis og mælti hann með því að flugmálayfirvöld myndu rannsaka atvikið og var um óþarfa áhættuatriði að ræða í boði stjórnar Cargolux.
Ekki voru allir sammála um hvort að þetta „vængjavink“ á meðfylgjandi myndbandi hafi verið öruggt
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.