flugfréttir
Leiðtoginn vill flugfreyjur Air Koryo í enn styttri og þrengri pils
Nýju búningarnir voru kynntir árið 2013
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur skipað norður-kóreska flugfélaginu Air Koryo að láta flugfreyjur félagsins vera í þrengri og styttri pilsum.
Tvö ár eru síðan að Air Koryo kynnti nýja og nútímalega búninga fyrir flugfreyjur félagsins í samræmi við aðrar flugfreyjur í hinum vestræna heimi með styttri pilsum og fleygnara hálsmáli.
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu
Svo virðist sem að Kim Jong-un hafi eitthvað yfirsést síddin á pilsunum þegar búningarnir voru hannaðir en hann kom sjálfur að hönnunarferlinu árið 2013 - Núna hefur Jong-un fengið bankþanka og vill hann að þau verði gerð enn styttri svo það sjáist meira í fótleggina.
Þótt að Air Koryo hafi eldgamlar flugvélar í flota sínum þá hafa fáir íbúar landsins efni á því að fljúga með félaginu þar sem fargjöldin eru um 250 sinnum hærri en mánaðarlaun hins vinnandi verkamanns en meðalverð á farmiða með Air Koryo er frá 7.900 krónum og upp 11.600 krónur.
Gömlu búningarnir voru rauðir en árið 2013 voru bláu teknir í notkun hjá Air Koryo
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.