flugfréttir
Flugumferð í hámarki þessa dagana víða í Evrópu
- Metin falla í Bretlandi, Heathrow og aldrei fleiri farþegar með KLM
Airbus A340 vél SAS á flugi yfir Reykjavík í kvöld klukkan 21:56 á leið frá Kaupmannahöfn til Newark í Bandaríkjunum
Síðustu dagarnir í júlí sem eru að ganga í garð eru þeir annasömustu í háloftunum í fluginu í Evrópu og víðar þar sem flestir eru á faraldsfæti en fjölmargir eru á leið í fríið og hefur verið mikið álag bæði á flugvöllum og meðal flugfélaganna.
Bretland sér fram á metflugumferð í dag, 24. júlí, á breska flugumferðarsvæðinu og er gert ráð fyrir að um 8.000 vélar fari um breska lofthelgi á þessum sólarhring sem er m.a. stjórnað frá Shanwick á suðurhluta Englands.
Ísland er engin undantekning þegar kemur að metfjölda flugfarþega en mikil umferð hefur verið um Keflavíkurflugvöll sl. daga en talsmaður Isavia segir í viðtali við Alltumflug.is að allar helgar í júlí hafi verið stórar en fyrsta helgin í ágúst stefnir þó í metumferð þar sem Verslunarmannahelgin er oftast sú stærsta.
Sumarvertíðin hjá Icelandair er einnig í hámarki núna í júlí en svo gæti farið að farþegafjöldinn rjúfi 400 þúsund farþegamúrinn í þessum mánuði m.a.v. þá aukningu sem hefur átt sér stað í sumar og í fyrra.
Flugumferðarstjórar í Hampshire í Bretlandi fylgjast með flugumferðinni
Talið er að 130.000 farþegar muni fara um Heathrow-flugvöll í dag en á hefðbundnum dögum fara yfirleitt um 100 þúsund farþegar um flugvöllinn sem er sá stærsti í Bretlandi.
Þá hafa aldrei eins margir flogið með KLM Royal Dutch Airlines eins og sl. sunnudag þegar 93.048 farþegar flugu með félaginu til 139 áfangastaða sem er sólarhringsmet.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.