flugfréttir
Tengiflug dregst saman vestanhafs
- Samruni stærstu flugfélaganna hefur valdið samdrætti í innanlandsfluginu
Á meðan flugumferð um suma flugvelli hefur dregist verulega saman í Bandaríkjunum þá hafa aðrir flugvellir bætt við sig allt að 90% meiri umferð
Meðan flug eykst til flestra borga í samræmi við aukna flugumferð í heiminum þá sumar borgir sem fá færri vélar til sín þar sem áætlunarflug til þeirra hefur dregist verulega saman.
Á síðasta áratug hafa orðið þónokkrar breytingar í fluginu í Bandaríkjunum þar sem níu stór flugfélög réðu ríkjum en í dag hafa þau sameinast í 4 risastór flugfélög sem eiga 80% af markaðinum vestanhafs.
Ein af þeim afleiðingum sem hefur átt sér stað við sameiningu flugfélaga er niðurskurður í leiðarkerfinu en innanlandsflugið í Bandaríkjunum hefur dregist saman um 7% á sl. fjórum árum.
Nokkrir flugvellir sem voru stórir tengiflugvellir þar sem margir farþegar skiptu um vél hafa orðið verst fyrir barðinu á niðurskurðinum og þá sérstaklega flugvöllurinn í Memphis en flug um hann hefur dregist saman um 66 prósent og það sama má segja um flugvöllinn í Cleveland.
Flugvöllurinn í Newport News í Virginíu varð einnig illa úti eftir að Southwest Airlines hætti að fljúga þangað í kjölfar samrunans við AirTran en umsvif vallarins dróust saman við það um 51 prósent.
Þá hefur flugumferð dregist saman um 40% í Milwaukee, Allentown-Bethlehem-Eason, Key West og í Colorado Springs á sl. 4 árum.
Yfir 90% aukning á nokkrum árum um aðra flugvelli
Bandarísk stjórnvöld hafa tilkynnt að verið sé að rannsaka hvort að ólöglegt verðsamráð sé á milli stærstu flugfélaganna fjögurra en mögulega gæti minni samkeppni orðið til þess að verð á fargjöldum sé að breytast þar sem fleiri flugfélög hafa sameinast í eitt stórt félag.
PricewaterhouseCoopers vill samt meina að samkeppnin frá litlu flugfélögunum á borð við Virgin America, jetBlue og Spirit Airlines, sé mjög mikil og hafi sumir flugvellir séð fram á gríðarlega aukningu með tilkomu aukinna umsvifa meðal þeirra.
Þannig hefur flug um St. Pete–Clearwater flugvöllinn aukist um 94% og Orlando Sanford hefur séð aukningu upp á 71 prósent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.