flugfréttir

Sérstakar byssur sem taka niður dróna í þróun

26. júlí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 23:37

Reglulega berast fréttir af drónum sem er flogið í veg fyrir flugvélar

Mörgum þykir nóg um hversu algengt er að drónar trufli flugumferð og hversu algengt er að slíkum flygildum sé flogið á svæðum þar sem þeir eiga ekki að fljúga yfir.

Verið er að þróa nýja tækni sem er ætlað að sporna við drónaflugi með drónavarnarbúnaði og drónabyssum sem hægt er að nota sé þeim flogið yfir einkasvæði, bannsvæði eða staði þar sem þeir eru ekki velkomnir.

Í síðustu viku raskaðist slökkvistarf þar sem slökkviþyrla gat ekki flogið yfir með vatn til að slökkva skógarelda þar sem dróni var á sveimi til að taka myndir af skógareldunum.

Fylkisstjóri í Kaliforníu hefur gefið slökkviliðinu leyfi til þess að taka niður dróna séu þeir að raska slökkvistarf er kemur að skógareldum.

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú t.a.m. myndband sem birt var á YouTube þar sem 18 ára unglingur festi skammbyssu á dróna og flaug flýgildinu á meðan skotið var úr byssunni eins og sást á meðfylgjandi mynbandi:



Meðan slík vandamál hafa hrannast upp þá segir dagblaðið The World Street Journal að nokkur fyrirtæki séu að þróa búnað til varnar drónaflugi sem er ætlað að skjóta þá niður sé þeim flogið yfir ákveðið svæði.

Einn slíkur búnaður er AUDS (Anti-UAV Defence System) en hann styðst við ákveðna radíótíðni sem truflar sambandið við drónann og neyðir flygildið til þess að lenda eða lætur drónann breyta um stefnu.

Breska fyrirtækið Blighter Surveillance framleiðir slíkt kerfi en einnig eru til laserbyssur sem skjóta dróna niður af löngu færi.

Drónavarnarkerfi er aðeins ein leið til að sporna við vandanum en sumir drónaframleiðendur hafa þegar framleitt dróna sem koma með innbyggðu minni sem útlistar bannsvæði og er því ekki hægt að fljúga flygildinu yfir þau.

Myndband: AUDS (Anti-UAV Defence System)







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga