flugfréttir
Flugvöllurinn í Kuala Lumpur að sökkva
- Vatn flæðir upp um sprungur og flugvélar aka gegn um stóra polla
Vatn flæðir um allt flughlaðið kringum nýju lágfargjaldaflugstöðina á Kuala Lumpur flugvellinum
Hluti af flugvellinum í Kuala Lumpur er að sökkva en Tony Fernandes, framkvæmdarstjóri malasíska lágfargjaldafélagsins AirAsia, segir að ný flugstöðvabygging sem nýlega var tekin í notkun sé að sökkva hægt og rólega ofan í jarðveginn.
Sprungur hafa myndast á flughlaðinu og á akstursbrautum og þurfa flugvélar að aka til og frá flugstöðinni í gegnum stóra polla þar sem vatn streymir um allt hlaðið.
Fernandes sakar flugmálayfirvöld um ábyrgðarleysi og hvetur þau til að grípa í taumana þar sem vatnsflaumurinn ógnar öryggi vélanna og sé þegar farinn að valda seinkunum.
Flugvallarfyrirtækið Malaysia Airports Holdings hefur gert nokkrar bráðabirgðarframkvæmdir en Fernandes segir að nauðsynlegt sé að finna varanlega lausn.
Fernandes setti ljósmynd á Twitter sem sýnir hvernig nefhjólið á einni AirAsia vélinni leit út vegna vatnselgsins - "Hjólið beygðist þar sem vélin rann yfir klossanna. Það þarf að laga flugvöllinn", segir Fernandes.
Malaysia Airports Holdings segir að það hafi verið vitað áður en framkvæmdirnar hófust að jarðvegurinn er ekki nægilega stöðugur undir flugvellinum og sé verið að laga vandann með því að styrkja undirlagið með því að dæla pólýúretan-efni undir flugvöllinn.
"Við höfðum aldrei átt að fara okkur yfir", sagði Fernandes við fréttamenn í dag. "Stjórn AirAsia hafði rétt fyrir sér. Við hefðum aldrei átt að fara okkur yfir.Við hefðum átt að bíða eftir að búið væri að laga jarðveginn og svo flytja yfir í nýju flugstöðina".
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.