flugfréttir
Larry Loftis hættir sem yfirmaður yfir Dreamliner-deildinni hjá Boeing
Mark Jenks (til vinstri) tekur við af Larry Loftis (til hægri)
Larry Loftis, yfirmaður yfir Dreamliner-deildinni hjá Boeing, mun láta af störfum á næstunni en hann hefur stjórnað þróuninni og framleiðslunni á Boeing 787 vélinni.
Loftis hefur unnið hjá Boeing sl. 35 ár en hann tók við Dreamliner-framleiðslunni árið 2012 en hafði áður verið háttsettur yfir Boeing 737 framleiðslunni áður en hann varð yfirmaður með Boeing 777 vélunum og einnig var hann verkefnastjóri við framleiðslu á Boeing 757.
Mark Jenks mun taka við af Loftis sem yfirmaður yfir Dreamliner-framleiðslunni en hann hefur sinnt varaformennsku með Boeing 787 verkefninu en framundan hjá Jenks er að leiða áfram framleiðsluna á stærstu og síðustu útgáfunni af vélinni, Boeing 787-10.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.