flugfréttir
Bættari ímynd Ryanair skilar sér í gróða og gott betur
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair
Bættari ímynd Ryanir er einn orsakavaldur þess að lágfargjaldafélagið írska er orðið töluvert vinsælla á nokkrum mánuðum en 16 prósenta farþegaaukning hefur orðið hjá félaginu sl. þrjá mánuði.
Ryanair hefur reynt að vinna sér inn meiri vinsældar með herferðinni „Always Getting Better“ en félagið hafði lengi verið gagnrýnt fyrir bágborna framkoma gagnvart farþegum sem kvörtuðu undan ströngum reglum varðandi aukaþjónustu ásamt ýmsum atriðum í garð félagsins.
Þá hefur hagnaður Ryanair aukist um 10 prósent en Kenny Jacobs, markaðsstjóri félagsins segir að mikil ánægja ríki hjá félaginu með 16 prósenta farþegaaukninguna.
Útlitið hjá Ryanair það sem er eftir af árinu er mjög gott og er því spáð að hagnaðurinn muni nálgast einn milljarð evra árið 2015 sem samsvarar 150 milljörðum króna.
Ryanair ætlar að halda áfram með herferðina „Always Getting Better“ og stendur til að endurnýja vefsíðu félagsins, von er á nýju farþegarými með nýjum sætum um borð í vélarnar og þá er von á nýjum búningum fyrir áhafnir á næstunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.