flugfréttir
Framleiðsla hafin á nýrri rafmagnsflugvél í Bandaríkjunum
- Sun Flyer mun fara í fjöldaframleiðslu á næstunni í Tennessee
Tölvugerð mynd af Sun Flyer vélinni
Framleiðsla er hafin á fyrsta eintakinu af nýrri rafmagnsflugvél í Bandaríkjunum sem mun á næstunni fara í fjöldaframleiðslu en vélin er hönnuð af fyrirtækinu Aero Electric Aircraft í Shelbyville í Tennessee.
Vélin, sem nefnist Sun Flyer, er eins hreyfils, tveggja sæta flugvél sem mun koma með stjórntækjum með snertiskjám
Til að byrja með verða tvær tilraunavélar smíðaðar og er hér um að ræða fyrstu rafmagnsflugvélina sem bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) munu samþykkja sem er ætluð bæði fyrir einkaflug og flugkennslu.
George Bye, framkvæmdarstjóri Aero Electric Aircraft, telur að flugprófanir með Sun Flyer vélina muni hefjast fyrir árslok en samstarf er hafið við Redbird Flight Simulations sem mun sjá um flugþjálfun á vélina og Spartan College of Aeronautics and Technology mun annast flugkennslu fyrir fyrstu 20 vélarnar sem verða smíðaðar.
Meðal annarra fyrirtækja sem eru að vinna að hönnun á rafmagnsflugvélum er Pipistrel sem hefur smíðað Alpha Electro vélina og þá hefur Airbus smíðað fyrsta eintakið af E-Fan vélinni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.