flugfréttir
Komst gegnum öryggisleit og út í flugvél með ekkert í höndunum
Frá Dallas/Fort Worth flugvellinum
Yfirvöld í Bandaríkjunum klóra sér nú í höfðinu yfir því hvernig karlmanni á þrítugsaldri tókst að komast um í gegnum flugvöll í Texas, framhjá öryggisleit og áfram um borð í farþegaþotu með ekkert í höndunum og engan flugmiða.
Maðurinn lagði bíl sínum fyrir utan Dallas/Fort Worth flugvöllinn, gekk í átt að öryggisleit og fór þar í gegn með enga pappíra og áfram út í vél en þegar upp komst um atvikið var maðurinn handtekinn áður en vélin fór í loftið.
Leit var gerð í bílnum hans þar sem honum var lagt við gangstéttabrúnina við innganginn en ekkert grunsamlegt fannst við þá leit.
Ekki hefur komið fram hvaða flugfélag átti í hlut né fleiri upplýsingar um málið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.