flugfréttir
SpiceJet í viðræðum við Boeing og Airbus um risapöntun
Boeing 737 vél SpiceJet í aðflugi að flugvellinum í Bombay
Indverska flugfélagið SpiceJet er í viðræðum bæði við Boeing og Airbus um mögulega risapöntun í 100 farþegaþotur að andvirði yfir 1.400 milljarða króna.
SpiceJet er í samningaviðræðum um kaup á annað hvort Airbus A320neo eða Boeing 737 MAX og væri um að ræða stærstu pöntun sem að indverskt lágfargjaldafélag hefur gert í nýjar vélar.
SpiceJet er annað stærsta flugfélagið á Indlandi þegar kemur að innanlandsfluginu en félagið hefur í dag 18 Boeing 737 vélar í flotanum og tvær Airbus A320 vélar á leigu.
SpiceJet gekk í gegn um erfitt tímabil í fyrra fjárhagslega þar sem félagið var á barmi gjaldþrots en forstjóri félagsins náði að koma með fjárfesta inn í reksturinn og hefur félagið skilað inn hagnaði sl. tvo ársfjórðunga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.