flugfréttir

Tvær nýjar kennsluvélar fyrir Flugskóla Íslands á leiðinni til landsins

- Vonast til þær nái yfir hafið til landsins fyrir helgi

29. júlí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 13:32

Vélarnar tvær lögðu af stað klukkan 7 í morgun frá Capua á Ítalíu

Tvær nýjar kennsluvélar fyrir Flugskóla Íslands eru nú á leið til landsins frá Tecnam á Ítalíu en vélarnar eru af gerðinni Tecnam P2002 JF.

Vélarnar bera skráninguna TF-IFA og TF-IFB og lögðu þær af stað frá verksmiðjunum í Capua, norður af Napólí, klukkan 7 í morgun.

Vélarnar tvær eru í augnablikinu á leiðinni til Frakklands sem er langt flug upp eftir Ítalíuskaganum en þar munu þær lenda til að taka eldsneyti.

TF-IFA og TF-IFB eru nú á leið til landsins frá Ítalíu

Á leið til Frakklands og fara þaðan til Bretlands og Skotlands

Vélarnar fara frá Frakklandi í fyrramálið til Bretlands þar sem þær munu hafa viðkomu á Fairoaks Airport í Woking, skammt suður af Heathrow-flugvellinum en í Bretlandi mun fara fram létt skoðun eftir fyrstu 25 flugtímana áður en þær halda yfir hafið.

Næsta stopp verður í Wick í Skotlandi og verður þaðan flogið Íslands fyrir helgi ef veður leyfir en mögulega gæti þurft að lenda í Færeyjum og einnig í Höfn í Hornarfirði.

"Þetta fer allt eftir veðri og vindum. Það er verið að bíða eftir sunnanátt", segir Guðlaugur Sigurðsson, rekstrarstjóri flugdeildar hjá Flugskóla Íslands í samtali við Alltumflug.is.

Hinar tvær koma í september

Flugskóli Íslands gerði samning við Tecnam í maí um kaup á fjórum Tecnam P2002 JF en hinar tvær verða afhentar í september og er vonast til þess að veður verður gott þegar seinna afhendingarflugið mun eiga sér stað. - "Við verðum að vona að veðrið verði gott þar sem það er komin september. Annars er bara að bíða færis".

Vélarnar sem eru nú á leiðinni til landsins fara beint í notkun eftir helgi. "Það er smá pappírsvinna sem mun fara fram til að fá kennsluleyfi á þær en það ætti ekki að taka meira en 1 - 2 daga. Við erum alveg mjög spenntir fyrir vélunum", segir Guðlaugur að lokum.









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga