flugfréttir

Myndband: Emirates kveður síðustu Boeing 777-200 vélina

30. júlí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 22:58

Constantinos Nicolaou, flaug síðustu Boeing 777-200 vélinni til Arizona

Varla hefur liðið sá mánuður sem að Emirates hefur ekki tekið ekki á móti nýrri vél frá Airbus og Boeing en sjö vélar voru teknar úr umferð úr flotanum í fyrra og 10 vélar munu hverfa úr flotanum til viðtóar á þessu ári.

35 starfsmenn hjá Emirates starfa í flotadeild félagsins og vinna alla daga að því að hagræða og skipuleggja flotann sem telur 234 farþegaþotur sem fljúga til allra heimsálfa og gera áætlanir um hvenær hentugast er að taka gamlar vélar úr umferð.

Emirates tók nýlega úr umferð síðustu Boeing 777-200 vélina (A6-EMF) sem hafði flogið 60 milljónir kílómetra sem samsvarar 80 ferðum til tunglsins fram og til baka en hún kom í flota félagsins árið 1996.

A6-EMF fyrir brottför í síðasta flugið til Arizona og Emirates-litirnir farnir

Þann 14. júlí sl. var A6-EMF flogið sitt síðasta flug frá Dubai til Boston og þaðan áfram til Arizona þar sem örlög hennar munu ráðst en það var Constantinos Nicolaou, flugstjóri, sem flaug vélinni síðasta flugið.

"Hún hefur komið sér vel. Hverjum hefði dottið það í hug þegar við fengum Boeing 777-200 að eftir tæpa tvo áratugi yrði Emirates stærsta flugfélag í heimi með breiðþotur og það stærsta með Boeing 777", segir Nicolaou. - "Hvað ætli framtíðin ber í skauti sér fyrir félagið á næstu tveimur áratugum".

Boeing 777-200 vélin ruddi veginn fyrir þær Boeing 777 vélar sem eru í flotanum í dag en Emirates er eina flugfélagið í heimi sem hefur haft allar tegundur af Boeing 777 vélum.

Síðasta árið hefur Emirates einnig tekið úr umferð 8 Airbus A340-500 vélar og er aðeins ein eftir sem mun hverfa úr flotanum í september.

Í fyrra og á þessu ári hefur Emirates tekið á móti 24 nýjum þotum og von er á 26 til viðbótar það sem af er þessi ári en stefna flugfélagsins er að vera með eins ungar þotur og hægt er og er meðalaldur flotans aðeins 6 ár.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga