flugfréttir
Brak sem gæti tengst flugi MH370 kom til Frakklands í nótt
- Er á leið í augnablikinu frá Orly-flugvellinum til Toulouse
Boeing 777 vél Air France lenti með flaperon-brakið í París á fimmta tímanum í morgun
Brak, sem fannst á frönsku Réunion-eyjunni í Indlandshafi sl. miðvikudag, sem talið er vera flapseron af Boeing 777 sem tilheyrir malasísku farþegaþotunni, kom í morgun til Frakklands eftir næturflug frá Roland Garros Airport (RUN) flugvellinum með Boeing 777 vél Air France.
Vélin lenti með brakið á Orly-flugvellinum í París í morgun klukkan 04:17 og er nú verið að flytja brakið landleiðina með lögreglufylgd til Toulouse en herdeild innan franska hersins, sem sérhæfir sig í flugslysarannsóknum, munu rannsaka brakið og komast að því hvort það tilheyri flugi MH370 en einnig munu franskir flugslysasérfræðingar frá BEA rannsaka brakið með þeim.
Brakið fannst sl. fimmtudag
Farið verður með brakið á rannsóknardeilldina Direction generale de l´armement (DGA) í Balma, nálægt Toulosue, þar sem BEA hefur skrifstofur en á rannsóknarstofunni starfa um 600 manna teymi sérfræðinga.
Sundurtætt ferðataska, sem einnig fannst á ströndinni á Réunion-eyjunni, var einnig tekin með og verður hún rannsökuð og DNA sýni tekin af töskunni.
Direction generale de l´armement (DGA) í Balma þar sem flakið verður rannsakað í dag
Brakinu var pakkað vel inn og flutt í gærkvöldi út á flugvöllinn á Réunion-eyjunni
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.