flugfréttir
ESB mun rannsaka ólögmæta viðskiptahætti hjá Wizz Air
- Sakað um að hafa þegið styrki og afslátt frá flugvöllum í Rúmeníu
Airbus A320 vél Wizz Air
Evrópusambandið ætlar að rannsaka hvort að möguleiki sé á því að ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air hafi hagnast á óheiðarlegu markaðssamráði og fengið afslátt á flugvallargjöldum á tveimur flugvöllum í Rúmeníu.
Rannsóknin verður gerð í kjölfar ábendingar og kvörtunar en talið er að Cluj-héraðið í Rúmeníu hafi greitt Wizz Air fé til þess að auglýsa sérstaklega ferðamannaiðnaðinn á svæðinu með ólögmætum hætti sem stuðlar að óheiðarlegri samkeppni og þá hafi félagið einnig fengið í staðinn sérstakan afslátt af þjónustugjöldum á tveimur rúmenskum flugvöllum.
Evrópusambandið ætlar einnig að rannsaka hvort að Wizz Air hafi þegið aðra styrkja frá flugvallaryfirvöldum í landinu og þá stendur til að skoða lendingargjöldin á Targu Mures-flugvellinum í Rúmeníu sem þykja óvenju lág.
Ef flugvallaryfirvöld í Rúmeníu verða fundin sek um að hafa brotið samkeppnislög og reglugerðir Evrópusambandsins mun það verða til þess að þau gæti verið krafin um sektir og flugfélagið beðið um að skila upphæðinni til baka.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.