flugfréttir
Flapsi losnaði af Boeing 747-400F í lendingu hjá Cathay Pacific Cargo
Boeing 747 fraktvél Cathay Pacific Cargo í lendingu
Flapsi losnaði af Boeing 747-400F fraktvél frá Cathay Pacific Cargo í lendingu á Indlandi þann 27. júlí.
Vélin var að koma frá Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong þegar í ljós kom að hluta af flapsa á öðrum vængnum vantaði en flapsinn fannst skömmu síðar þar sem hann lá á flugbrautinni.
Starfsfólk Delhi-flugvallarins tilkynnt um að eitthvað sem líktist flapsa væri á miðri flugbrautinni og þurfti að loka vellinum fyrir flugumferð í um klukkustund.
Engin hætta var á ferðum er vélin lenti og taxaði vélin frá brautinni með eðililegum hætti. Atvikið er nú rannsakað og er búið að gera flugmálayfirvöldum á Indlandi viðvart og einnig hefur Boeing verið tilkynnt um atvikið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.