flugfréttir

Flugbrautir lagðar á nokkrum stöðum sérstaklega fyrir Kim Jong-un

26. ágúst 2015

|

Frétt skrifuð kl. 13:35

Nýja einkaþota leiðtoga Norður-Kóreu er af gerðinni Ilyushin Il-62

Framkvæmdir eru nú í fullum gangi í Norður-Kóreu á nokkrum einkaflugbrautum víðsvegar um landið sem eru sérstaklega ætlaðar fyrir leiðtogann Kim Jong-un.

Þótt að faðir leiðtogans, Kim Jong-il, hafi verið flughræddur, þá hefur Jong-un mikinn áhuga á flugvélum en framkvæmdir á flugbrautunum hófust árið 2014.

Gervihnattamyndir sem Bandaríkjamenn hafa tekið sýna nokkrar nýjar brautir sem búið er að leggja við nokkur heimili og bústaði leiðtogans auk þess sem nokkrar flugbrautir hafa risið við þær einkalestarstöðvar sem Kim Jong-il notaði.

Kim Jong-un hefur fylgst grannt með flugmálum í Norður-Kóreu á þeim þremur árum sem hann hefur verið við völd í landinu en meðal annars hafa verið birtar sjónvarpsupptökur þar sem leiðtoginn flýgur flugvélum.

Ein af þeim fimm flugbrautum, sem lögð hefur verið við þau heimili sem eru í eigu Kim Jong-un, liggur við lúxusvillu hans í borginni Wonsan en þar hefur Jong-un tekið á móti vestræna vini sínum og körfuboltaleikmanninum Dennis Rodman.

Kim Jong-un hefur mikinn áhuga á flugmálum og hefur „flogið“ nokkrum vélum

Þá hefur Kim Jong-un yfir að ráða sovíeskri Ilyushin Il-62 vél sem var breytt í einkaþotu sem kemur með leðurstólum, kristal-öskubökkum og stórum viðarborðum.

Eftir að Jong-un fór á einkaþotunni til að fylgjast með framkvæmdum á verksmiðju birtust myndir af því er hann tók sjálfur á loft í vélinni.

„Ég verð að prófa flugvélarnar sjálfur til að vera viss um að þær hafi verið smíðaðar eftir okkar gæðakröfum“, sagði leiðtoginn í viðtali á þeim tíma.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga