flugfréttir

Flugstarfsemi Greenland Express slegið á frest í fjórða sinn

- Munu ekki snúa við í háloftin á þessu ári

28. ágúst 2015

|

Frétt skrifuð kl. 11:39

Gert Brask, framkvæmdarstjóri Greenland Express

Greenland Express mun ekki hefja sig aftur á loft í bráð og hefur öllum áformum verið frestað enn á ný og í þetta skipti út árið.

Rekstur félagsins hefur gengið erfiðlega þar sem félagið hefur ekki flogið milli Danmerkur og Grænlands í 11 mánuði vegna vandamála sem upp hafa komið m.a. vegna úthlutunar á flugvélum og áhöfnum frá flugvélaleigum og flugfélögum í Evrópu sem félagið hefur átt í samstarfi við.

Félagið hefur því fjórum sinnum tilkynnt um að flug sé að hefjast að nýju en í öll skiptin hefur komið tilkynning til viðskiptavina þess efnis að flugstarfsemi hefur verið slegið á frest.

Áætlunarflug átti upphaflega að hefjast að nýju þann 2. júlí í sumar, en því var frestað til 14. júlí, því næst til 27. júlí og að lokum frestað til 17. ágúst en nú hefur komið í ljós að félagið mun ekki fljúga á þessu ári að nýju.

„Við tilkynnum hér með að því miður neyðumst við til þess að hætta við áætlanir um flug milli Danmerkur og Grænlands árið 2015. Þetta þýðir að við getum ekki boðið upp á það flug sem þið höfðuð bókað hjá okkur“, segir Greenland Express á vefsíðu sinni en einnig kemur fram að farþegar fái endurgreitt eins fljótt og hægt er.

Greenland Express segir að verið sé að vinna að því að finna varanlega lausn til að tryggja öruggt og stöðugt leiðarkerfi og muni félagið birta nánari upplýsingar um stöðu mála þegar nær dregur.

Ástæða þess að Greenland Express gat ekki hafið flug í júlí var sú að félagið hafði leigt Airbus A319 vél frá búlgarska flugfélaginu BH Air en félagið hætti við samninginn á þeim forsendum að flugfélagið grænlenska hafði ekki greitt fyrirframgreiðslu fyrir leiguna á vélinni sem var þess í stað leigð til Spicejet á Indlandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga