flugfréttir

HAITEC framkvæmir sína fyrstu D-skoðun á Boeing 747

28. ágúst 2015

|

Frétt skrifuð kl. 12:33

Hópurinn hjá HAITEC eftir að D-skoðuninni lauk í gær

D-skoðun á Boeing 747 er án efa ein umsvifamesta viðhaldsskoðun sem fram fer á flugvél en fyrirtækið HAITEC Aircraft Maintenance GmbH lauk á dögunum sinni fyrstu D-skoðun á vél af gerðinni Boeing 747-400 frá Silk Way Airlines.

„D-skoðun er án efa víðtækasta skoðun sem fram fer á flugvél. Flugvélin er nánast tekin í sundur og hver einasti hlutur og skrúfa skoðuð og gaumgæfilega er leitað að málmþreytu og sprungum á vélinni“, segir Frank Rott, framkvæmdarstjóri HAITEC.

D-skoðun á Boeing 747 vél tekur 5 vikur en sá tími er þó breytilegur sem fer eftir því hvað kemur í ljós við skoðunina en ferlið getur tekið allt að þrjá mánuði.

„Að ljúka D-skoðun á sem minnstum tíma krefst færni og samvinnu þar sem allt þarf að ganga eftir áætlun sem er markmið okkar hjá HAITEC“, segir Rott sem tekur fram að flugvirkjum fyrirtækisins tókst að standa við loforð sitt um að vélin yrði ekki úr umferð lengur en í 32 daga.

Yfir 2.300 aðgerðir fóru fram og voru 800 atriði lagfærð sem tók 26.000 vinnustundir samtals á hvern flugvirkja og að því loknu var vélin aftur afhent til Silk Way í Azerbaijan en D-skoðunin fór fram á Hahn-flugvellinum í Frankfurt í Þýskalandi.

HAITEC er sjálfstætt viðhaldsfyrirtæki sem stofnað var árið 2008 á Frankfurt Hahn flugvellinum en þar starfa yfir 300 manns sem sjá um viðhaldsskoðun fyrir 50 flugfélög og fyrirtæki um allan heim.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga