flugfréttir
Icelandair fagnar 70 ára flugafmæli til Glasgow
Þann 27. ágúst voru 70 ár liðin frá því Icelandair hóf fyrst að fljúga til Glasgow
Icelandair fagnaði því í vikunni að félagið hefur flogið til Glasgow í Skotlandi í 70 ár en borgin skoska er einn elsti áfangastaður félagsins og var flogið þangað fyrst þann 27. ágúst árið 1945.
Icelandair mun fagna þessu með því að auka tíðni á flugi til Glasgow upp í 6 flug á viku frá og með 19. mars á næsta ári en eftirspurn eftir flugsætum milli Glasgow og Keflavík er mjög mikil að öllu jöfnu.
„Það eru frábrærar fréttir að Icelandair ætli að fjölga ferðum til Glasgow upp í sex flugferðir á viku í tilefni af 70 ára flugafmæli til Skotlands“, sagði Francois Bourienne, rekstrarstjóri flugvallarins í Glasgow.
Þá mun félagið hefja flug til Aberdeen í Skotlandi í mars 2016 en flogið verður með Bombardier Q400 vélum frá Flugfélagi Íslands og verður Aberdeen sjötti flugvöllurinn sem félagið flýgur til á Bretlandseyjum.
Áhöfnin í afmælisfluginu til Glasgow
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.