flugfréttir
Rússar íhuga að framleiða Ilyushin Il-96 vélina í áratug í viðbót
Ilyushin Il-96 vél Aeroflot
Rússar íhuga að framlengja framleiðslunni á Ilyushin Il-96 þotunni í allt að áratug til að koma til móts við þarfir rússneska flughersins sem þarf eldsneytisflugvélar af þessari gerð.
Þetta segir Yuri Slyusar, framkvæmdarstjóri United Aircraft Corporation (UAC), en vélin hefur verið framleidd í 28 ár en vélin koma á markaðinn árið 1988 þegar Aeroflot tók við fyrsta eintakinu.
Ilyushin Il-96 þotan hefur verið smíðuð í verksmiðjunum í Voronezh í Rússlandi en efasemdir hafa verið um framtíð verksmiðjunnar vegna átaka milli Rússlands og Úkraínu en verksmiðjan hefur verið starfrækt í 80 ár.
Voronezh Aircraft Production Association (VASO) framleiddi farþegaútgáfuna af Ilyushin Il-96 vélinni til ársins 2009 en þá stöðvaði UAC framleiðsluna og var þá aðeins fraktútgáfan smíðuð áfram.
Í janúar gerði rússneska varnarmálaráðuneytið samning við UAC um framleiðslu á eldsneytisvél fyrir flugherinn í Rússlandi sem getur borið 65 tonn af eldsneyti.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.