flugfréttir
Fyrsta ameríska Airbus-vélin verður afhent eftir 2 vikur
Airbus A321 vél fyrir jetBlue verður fyrsta vélin sem smíðuð er í verksmiðjunum
Eftir 2 vikur verður fyrsta Airbus-vélin tilbúin sem framleidd hefur verið í Ameríku en tvö og hálft ár eru síðan að fyrsta skóflustungan var tekin af verksmiðjum Airbus í Alabama í Bandaríkjunum.
Um 1.000 starfsmenn starfa í verksmiðjunni í Mobile en framkvæmdirnar hafa kostað um 77 milljarða króna og mun Airbus setja saman A320 vélar fyrir Ameríkumarkað í samkeppni við Boeing.
Verksmiðjur Airbus í Mobile í Alabama
Megineiningarnar verða samt sem áður framleiddar í Þýskalandi, á Spáni, Frakklandi og í Bretlandi en þaðan eru þær ferjaðar til Hamborg þar sem þeim er komið um borð í skip sem siglir með hlutana yfir Atlantshafið til Alabama.
Leiðin er of löng til að hægt sé að fljúga með einingarnar um borð í Beluga-fluttningavél Airbus en siglingin yfir Atlantshafið tekur um 20 daga.
Eftir 2 ár er gert ráð fyrir að ferja 4 sendingar á mánuði sem þýðir að hægt er að framleiða fjórar Airbus A320 vélar í Ameríku.
Fyrsta vélin, sem tilbúin verður þann 14. september, er Airbus A321 vél sem verður afhent til jetBlue árið 2016.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.