flugfréttir
Boeing undirbýr prófanir með „folding wingtip“ fyrir Boeing 777X vélina
Ítarleg hönnun á Boeing 777X vélinni er í þann mund að hefjast hjá Boeing
Boeing vinnur nú að því að hefja ítarlega hönnun á Boeing 777X vélinni en þann 25. ágúst var tilkynnt að frumhönnun vélarinnar væri lokið.
Boeing ætlar sér að taka hönnun vélarinnar á næsta stig með nýrri hönnun á væng vélarinnar en gert er ráð fyrir að vængendi vélarinnar verði samanbrjótanlegur („folding wingtip“) til að auðvelda aðgengi vélarinnar á flughlaði á flugvöllum í samræmi við takmarkanir um vænghaf flugvéla.
Með „folding wingtip“ mun Boeing ná að lengja hvern vængenda um 12 fet sem mun auka lyftigetu vélarinnar og mun hún því geta flogið eins langt og Boeing gefur upp í upplýsingum varðandi flugþol.
Með Folding Wingtip mun Boeing geta lengt vænghafið á Boeing 777X og getur vélin samt sem áður lagst að landgangi án þess að lengd vængjanna verði lengri en reglugerðir segja til um
Boeing mun hefja prófanir með nokkrum útgáfum af búnaði sem á að geta látið vængendann brettast upp ásamt pinna sem mun læsa vængendanum í upprétta stöðu þeggar vélin er lent.
„Við erum að prófa tvö mismunandi kerfi af Folding Wingtip System, annarsvegar prótótýpuna og hinsvegar lokaútgáfuna. Við tökum enga áhættu og viljum vera vissir um að samanbrjótanlegur vængendi muni virka“, segir Bob Feldmann, yfirmaður yfir Boeing 777X deildinni.
Boeing hefur ekki birt ítarlegar teikningar á Folding Wingtip en í teikningu sem fylgir umsókn um einkaleyfi má sjá teikningu þar sem búnaðurinn er útskýrður í grófum dráttum.
Hönnunin á Folding Wingtips er sögð frekar einföld í framkvæmd og mun þessi lausn ekki hafa nein áhrif á eiginleika vélarinnar nema fyrir þær rafleiðslur sem þurfa að tengjast ljósinu á vængendanum.
Prófanirnar með Folding Wingtip munu ekki fara fram með vængenda í fullri stærð og verður því notast við líkan af vængendanum, búnaði með hjörum og pinnalæsingum ásamt hluta vængsins.
„Vélin [Boeing 777X] er nákvæmleg eins og við vildum gera hana. Prófanir hafa farið fram í vindgöngum og upplýsingar úr tilraunum með burðargetu og þyngdardreifingu liggja fyrir og við erum tilbúnir að hefja ítarlega hönnun“, segir Feldmann en árið 2016 verður mjög krefjandi fyrir hönnun vélarinnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.