flugfréttir
Hvers vegna er svona lengi verið að ákveða arftaka Boeing 757?
Boeing 757
Svo virðist sem að ágætis þörf sé fyrir farþegaþotu á borð við Boeing 757 en þar sem 11 ár eru frá því að Boeing hætti að framleiða vélina mun þeim vélum, sem eru enn í umferð, fara fækkandi á næstu árum og flugfélög hefja leita að sambærilegri vél.
„Það er engin vél eins og Boeing 757 - Þetta er einstök vél“ - Þessi orð hafa nokkrum sinnum verið látin falla um þennan duglega vinnuhest sem sameinar stuttar flugleiðir í innanlandsflugi og flug milli tveggja heimsálfa.
738 eintök af Boeing 757 eru enn á flugi um víða veröld og þrátt fyrir að fjöldi flugfélaga vilja fá arftaka
af vélinni þá hefur Boeing sagt það nokkrum sinnum að ekki komi til að framleiða staðgengil fyrir Boeing 757 þótt í fyrra hafi flugvélaframleiðandinn gefið í skyn að mögulega gæti vélin farið aftur í framleiðslu.
Í staðinn er Boeing að skoða aðra hluti. Framleiðandinn hefur lýst því yfir að verið sé að skoða möguleika
á nýrri þotu sem verður stærri en Boeing 737 MAX en þó minni en Dreamliner-vélin og getur tekið aðeins
fleiri farþega en Boeing 757 og flogið lengra.
Nokkrir mánuðir eru síðan að Boeing lýsti þessu yfir og tilkynnti að viðræður séu í gangi við allmörg flugfélög, sem hafa Boeing 757 í flotanum í dag, og sé verið að taka saman kröfur þeirra og reyna átta sig á því hvernig
vél væri hentugast að smíða sem væri klæðskerasniðin að þeirra þörfum.
Eftir að hafa ráðfært sig við flugfélögin er stóra spurningin hjá Boeing: „Hvernig flugvél erum við að tala um?“ en
tíminn líður og mörg ár munu líða þar til ný vél kæmi á markaðinn og meðan gætu mörg flugfélög pantað
aðrar vélar þótt ekki sé margt í boði.
Talað eru um „markaðinn í miðjunni“ þar sem gat er í flórunni af þeim farþegaþotum sem eru í boði þar
sem nokkrir flugvélaframleiðendur eru að smíða allt frá minnstu farþegaflugvélum sem taka færri en 40
farþega upp í risaþotur sem taka yfir 700 farþega eftir útfærslum.
En engin vél er framleidd sem tekur kringum 200 farþega sem hefur samt flugþol upp á 7.000 kílómetra
en hefur samt aðeins einn gang.
Boeing 757 vél DHL í lendingu á flugvellinum í Katowice
Airbus hefur „fyllt“ upp í skarðið en um miðjan janúar tilkynnti framleiðandinn að ný Airbus A321neoLR muni
hafa alla þá yfirburði sem Boeing 757 hefur - en með því þurfa þau flugfélög sem hafa í dag Boeing 757 í flota
sínum að skipta yfir í aðra tegund sem krefst þjálfunar á allt annað stjórnklefaumhverfi.
Nokkur flugfélag hafa þegar stokkið til og ákveðið að panta Airbus A321neoLR á borð við Air Astana
sem hefur Boeing 757 vélar í dag sem hafa verið notaðar í meðallöngu flugi en fleiri flugfélög hafa beðið
eftir því hvort að Boeing muni tilkynna nýja vél á næstunni.
Airbus A321neoLR kemur á markaðinn árið 2018 og hefur Airbus það forskot til þess að bíða og sjá hvað Boeing
gerir en Boeing er í erfiðri stöðu þar sem þrýstingur er á framleiðandann að fylla upp í sitt eigið gat auk þess
sem Boeing hefur sagt að þeir eigi í fullu fangi með að einblína á Boeing 737 MAX vélina sem nú er í smíðum auk annarra véla.
Hvað liggur að baki?
Markaðsérfræðingar í farþegaflugsheiminum segja að það sé mjög krefjandi og erfið ákvörðun fyrir Boeing
að fara út í þá sálma að fylla upp í gat þar sem ekki er enn ljós hvort að eftirspurnin sé það mikil.
Að þróa vél sem væri stærri en Boeing 737 MAX en minni en Dreamliner er meira en að segja það. Ef það væri
breiðþota þá væri það óhagstætt fyrir flugfélög og ef hún væri lengri þá myndi það skapa vandræði
upp á reksturinn þar sem tími færi í að koma fleiri farþegum um borð í vél sem er með einum gangi.
Þar af leiðandi hefur langur tími
farið í að átta sig á því hvað flugfélögin vilja og mun mikil greiningarvinna þurfa að eiga sér stað til viðbótar á næstunni.
Ný flugvél þyrfti að henta best fyrir alla þá sem hafa komið með sínar kröfur
Það sem hentar lágfargjaldaflugfélögunum gætu komið sér illa fyrir stóru flugfélögin og er því mikil áhætta
fyrir Boeing að ráðast í hönnun á nýrri vél nema vera alveg viss um hvaða vél virkar.
Þá mun velgengni Boeing 737 MAX vélarinnar spila stórt hlutverk fyrir frekari ákvörðunartöku en þegar er búið að
panta yfir 2.900 eintök af vélinni og er því langt frá því að hægt sé að segja að sú vél hafi verið röng ákvörðun.
Það eru því margir þættir sem Boeing á eftir að skoða vandlega áður en einhver ákvörðun verður tekin og er óvíst hvort búast megi við yfirlýsingu á næstu mánuðum eða næstu árum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.