flugfréttir

Fyrsti skrokkurinn tilbúinn fyrir V-280 Valor herþyrluna frá Bell

28. september 2015

|

Frétt skrifuð kl. 23:39

V-280 mun fljúga sitt fyrsta tilraunflug á seinni helmingi ársins 2017

Spirit AeroSystems hefur lokið við að smíða fyrsta skrokkinn fyrir nýju V-280 Valor herþyrluna sem er í þróun hjá hernaðardeild Bell Helicopter en samsetningin tók 22 mánuði.

Búkurinn, sem gerður er úr koltrefjaplastefni, verður á næstunni fluttur frá verksmiðjum Spirit AeroSystems í Wichita í Kansas til Amarillo í Texas þar sem lokasamsetning þyrlunnar mun fara fram.

Bell Helicopter verður tveggja hreyfla snúningsspaðaþyrla sem mun svipa til TiltRotor þyrlu AgustaWestland en framleiðandinn segir að þyrlan muni bjóða upp á eiginleika til lóðréttra hernaðaraðgerða sem engin þyrla býður upp á í dag þegar kemur að burðargetu, flugþoli og farflugshraða.

Þyrlan mun geta náð 520 kílómetra hraða á flugi með flugþol upp á 3.900 kílómetra og hámarksflugtaksþunga upp á 16 tonn með sex tonn af varningi, fjögurra manna áhöfn og 14 manna herliðs.

V-280 mun fljúga sitt fyrsta tilraunflug á seinni helmingi ársins 2017 en það er bandaríski herinn sem hefur pantað þyrluna og leiðir verkefnið áfram.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga