flugfréttir
Myndband: Aðflug og lending á St. Maarten úr stjórnklefa á Boeing 747
Draumur margra flugáhugamanna er að fara til St. Maarten og sjá lága aðflugið að flugvellinum
Flestir kannast við flugvöllinn í St. Maarten í Karíbahafi sem þekktur er fyrir eitt frægasta aðflug í heimi yfir Maho-ströndina.
Fjölmörg myndbönd eru að finna á Netinu sem sýna flugvélar koma óvenju lágt inn til lendingar og hundruði baðgesta
á ströndinni bíða spenntir eftir að fá stórar flugvélar yfir sig og enn fleiri safnast saman þegar
von er á júmbó-þotu til eyjanna. - KLM er þó eina flugfélagið sem flýgur Boeing 747 til St. Maarten í dag.
Hérna fylgjumst við hinsvegar með undirbúningnum fyrir lendingu á St. Maarten á Princess Juliana flugvellinum í stjórnklefa
á Boeing 747 vél KLM Royal Dutch Airlines.
Kapteinninn í þessu flugi er Tim ten Velde og með honum á hægri hönd er flugmaðurinn Michel Vat.
Flugleiðin frá Schiphol-flugvellinum til St. Maarten eru tæpir 8 þúsund kílómetrar og er
flugtíminn um 8 klukkustundir og 40 mínútur en yfirleitt kemur KLM yfir ströndina um 11-leytið fyrir hádegi að staðartíma.
KLM mun þó í vetur gera hlé á júmbó-fluginu til eyjanna og nota Dreamliner-vélar þess í stað og Boeing 747 verður aftur notuð árið 2016.
Í myndbandinu hér á eftir fer Tim ten Velde yfir RNAV-aðflugið að braut 10 og við fylgjumst með lendingunni bæði
í stjórnklefanum og af ströndinni.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.