flugfréttir
Emirates mun velja á milli A350-900 og Boeing 787-10
Tim Clark segir að þessar tvær vélar komi til greina
Tim Clark, forstjóri Emirates segir að félagið muni velja á milli Airbus A350-900 og Boeing 787-10 og verði ákvörðun tekin á næsta ári.
Emirates hætti við pöntun í sjötíu Airbus A350-900 og -1000 vélar í fyrra sem kom sem reiðaslag fyrir Airbus
en Clark segir að félagið hafi endurskoðað vélina eftir að menn fóru að sjá hversu yfirburða eiginleika hún hefur boðið
upp á eftir að flugfélög fóru að taka vélina í notkun.
„Við erum núna farnir að sjá alvöru tölur og frammistöðu hennar en áður voru þær tölur allt spár“, bæti Clark við.
Tim Clark segir að hann hafi einhverir áhyggjur varðandi notkun á Boeing 787-10 vélinni í Dubai yfir heitustu mánuði
ársins þótt að sú vél komi einnig til greina eins og Airbus A350-900.
„Við myndum ekki fljúga henni til New York eða Sydney en sem góður vinnuhestur sem gæti flogið allt að 9 klukkustundir
þá lítur þetta út fyrir að vera mjög góð vél“.
Ekki á döfunni að panta fleiri Airbus A380 risaþotur
Clark segir að allt bendi til þess að Airbus muni ekki koma með endurbættari og sparneytnari útgáfu af A380 risaþotunni
sem myndi þá koma til með að heita A380neo og þar af leiðandi mun Emirates ekki panta fleiri risaþotur.
Samt sem áður vill Clark sjá Airbus A380neo verða að veruleika og yrði hún að vera stærri, taka fleiri farþega og með
nýjum hreyflum sem myndu gera hana allt að 13% sparneytnari samanborið við núverandi risaþotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.