flugfréttir

Hvað gerist ef hjólin eru sett upp á meðan flugvél er á jörðunni?

2. október 2015

|

Frétt skrifuð kl. 23:12

Hvað gerist ef hjólin eru tekin upp á meðan hún er á flugvellinum?

Hvað gerist ef hjólin eru sett upp á flugvél sem er á flughlaðinu við landganginn? - Mun hún plompa niður á magann og skemmast?

Til að setja hjólin upp eða niður á farþegaþotum á borð við Boeing og Airbus þarf að ýta lítilli stöng upp eða niður merkt „LANDING GEAR“ svo hægt sé að taka hjólin upp eftir flugtak eða setja niður fyrir lendingu.

Ef hjólin eru sett upp þegar vélin er við landganginn mun vélin þó ekki detta niður þar sem sérstakur búnaður er nefnist „squat switch„, sem skynjar þyngd vélarinnar þegar hún er á jörðu niðri, koma í veg fyrir að hjólin fari upp en sumar flugvélartegundir styðjast við búnað sem skynjar flughraða og aflæsa hjólunum þegar vélin er komin á flug.

Sumir muna eflaust eftir þættinum því þegar Hómer
Simpson var settur í stjórnklefann og ýtti á vitlausan
takka og vélin féll ofan í jörðina

Þegar vélin er komin á loft þá skynjar búnaðurinn að þyngdin hvílir ekki lengur á jörðu niðri og aflæsir þá hjólin svo hægt sé að taka stellið upp.

Á farþegaþotum ef stönginni er ýtt í „UP“ stöðu á meðan vélin er enn við brottfararhliða eða á flugvellinum þá koma viðvörunarhljóð án þess að neitt annað gerist.

Sama gildir á minni flugvélum á borð við Beechcraft-vélar, King Air og fleiri einkaflugvélum en mælt með því að athuga reglulega hvort að sprunga sé komin í einangrunina utan um leiðslu sem liggur frá skynjarabúnaðinum þar sem vírar geta slitnað og valdið því að hjólin falla saman.

Gildir ekki um allar flugvélar

Ekki eru þó allar flugvélar sem hafa búnað sem fyrirbyggir að hægt sé að setja upp hjólin á jörðinni og þ.á.m. sumar orrustuþotur þar sem hægt er að taka hjólin upp sem kemur sér vél ef bremsur bila og eina leiðin til að stöðva þær snögglega í lendingu er að taka hjólin upp svo þær stöðvist á maganum.

Hinsvegar hafa komið upp atvik þar sem hjólin hafa óvart verið sett upp á flugvél sem var á jörðu niðri en slíkt gerðist er flugkennari var að kenna flugnema á Saab skrúfuvél sem var á jörðu niðri. Flugkennarinn óvart setti hjólin upp og vélin plompaði niður á jörðina og var afskrifuð og flaug ekki meira.

Þá getur búnaðurinn klikkað en slíkt gerðist þegar flugvirki einn hjá American Airlines ætlaði að sýna nýjum flugnemum að hjólin gætu ekki farið upp á Jetstream-vél þótt togað væri í handfangið - Hann sýndi þeim dæmi en allt kom fyrir ekki og vélin féll saman á magann. - Sú flugvélin var þó komin aftur í umferð viku síðar.

Saab skrúfuvél endaði á maganum eftir að hjólin voru sett upp







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga