flugfréttir

Samkeppni með breyttar fraktvélar í uppsiglingu milli Boeing og Airbus

3. október 2015

|

Frétt skrifuð kl. 09:49

Boeing 737 fraktflugvél

Samkeppni er hafin milli Boeing og Airbus um að breyta farþegaþotum með einum gangi í fraktflugvélar.

Boeing hefur gert samkomulag við kínverska fraktflugfélagið YTO Express Airlines um breytingar á Boeing 737-800 vélum í fraktflugvélar en ekki kemur fram hversu margar vélar flugfélagið ætlar að panta.

Þrátt fyrir samkomulagið hefur Boeing ekki tilkynnt formlega að til standi að bjóða upp á breyttar fraktvélar af gerðinni Boeing 737.

Airbus tilkynnti á þessu ári áætlanir um breytingar á Airbus A320 og A321 vélum fyrir fraktflug í samstarfi við ST Aerospace í Singapore og verða fyrstu vélarnar tilbúnar árið 2018.

Markaðurinn fyrir minni fraktþotur hefur aukist í kjölfar samdráttar á fraktflugi og mikil eftirspurn eftir minni þotum í fraktflugi hefur gert það að verkum að fáar slíkar vélar eru fáanlegar til þess að láta breyta í fraktvélar en oftast hafa eldri vélar verið teknar og þeim breytt sem hefur gefið þeim lengri líftíma.

Airbus hefur þó ekki tekist að halda í við Boeing á fraktflugsmarkaðnum þar sem flugvélaframleiðandinn evrópski hefur aðeins upp á að bjóða Airbus A330-200F vélar á meðan Boeing býður upp á fraktútgáfur af Boeing 747-8, Boeing 767 og Boeing 777.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga