flugfréttir
Red Bull listflugvél lendir á strippinu í Las Vegas
Heimsmeistarakeppnin í listflugi fer fram í Las Vegas eftir tvær vikur
Það eru til mismunandi leiðir til að mæta með stæl til spilaborgarinnar Las Vegas eins og með þyrlu eða limmósínu.
Flugkappinn Kirby Chambliss fór sína eigin leið er hann lenti Edge 540 V3 listflugvél Red Bull Air Race beint á „strippinu“ í miðri Las Vegas
en Kirby er einn af listflugmönnum Red Bull Air Race sem hefur hampað tveimur heimsmeistaratitlum í listflugi.
Kirby snéri við á miðri Las Vegas Boulevard og fór aftur í loftið og skildi götuna eftir í reyk en uppátækið er hluti að kynningu
fyrir heimsmeistarakeppnina í listflugi sem fram fer í Las Vegas frá 17 til 18. október.
Hér að neðan má sjá myndbandið af lendingunni sem hefur birst undir ensku fyrirsögninni „not your average landing strip“.
Þá hefur Kirby og listflugmennirnir Nicholas Ivanoff og Mathias Dolderer birt magnaðar ljósmyndir frá því er þeir flugu
í sólarlagi gegnum Monument-dalinn í Utah er þeir ferjuðu vélarnar
yfir til Las Vegas frá Fort Worth í Texas.
Myndband:
Myndir úr Monument Valley
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.