flugfréttir
Diamond Aircraft kynnir þyrluflugvél sem kemur á markað innan fárra ára
Tölvugerð mynd af vélinni sem Diamond Aircraft er að hanna
Diamond Aircraft er að þróa rafknúna þyrluflugvél með snúanlegum mótorum en flugvélaframleiðandinn austurríski segir að vélin gæti komið á markað innan sjö ára.
Diamond segir að þróun vélarinnar sé ekki komin langt af stað en búið er að birta myndir og drög að þyrluflugvélinni
sem mun koma með fjórir mótorum sem munu einnig framleiða rafmagn á meðan vélin er á flugi.
Ekki er enn komið nafn á vélina sem mun bæði geta farið lárétt og lóðrétt á loft og borið allt að sex farþega.
Christian Dries, framkvæmdarstjóri Diamond, segir að verið sé að undirbúa verkefnið fyrir áframhaldandi og ítarlegri hönnun
og sé stefnt að því að smíða ómannaða prótótýpu sem mun vega um 400 kíló en því næst verði fullsmíðuð tilraunavél framleidd.
Vélin mun koma með „fly-by-wire“ kerfi og sérstökum laserskynjurum sem geta látið vélina lenda sjálfa á næsta stað þar
sem engin fyrirstaða er á jörðu niðri og þá er einnig verið að skoða möguleika á tækni sem gæti látið vélina fljúga að mestu leyti sjálfa.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.