flugfréttir
Bandaríska þingið mun taka drónanotkun almennings til umræðu
- Áhyggjur varðandi drónanotkun nálægt flugvöllum hefur farið vaxandi
Drónanotkun í Bandaríkjunum hefur aukist mun hraðar en talið var fyrir nokkrum árum
Bandaríska þingið mun taka til umræðu öryggismál er varða noktun almennings á drónum vestanhafs í kjölfar hundruði atvika sem átt hafa sér stað þar sem fjarstýrðum flygildum hefur verið flogið of nálægt flugvöllum og flugvélum.
Undirnefnd bandaríska þingsins mun fara yfir gögn og tilkynningar frá öðrum þingfulltrúum er varða
þau atvik sem hafa komið upp þar sem reynt verður að draga upp greinargóða mynd af ástandinu til að meta
alvarleika stöðunnar eins og hún er í dag.
Árið 2010 spáðu bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) því að 15 þúsund drónar yrðu í umferð í Bandaríkjunum
árið 2020 en í dag er verið að selja yfir 15 þúsund dróna í hverjum mánuði vestanhafs.
Miklar áhyggjur eru yfir því að fjarstýrð flygildi eigi eftir að rekast á flugvélar í aðflugi að flugvöllum
og hafa sumir sérfræðingar sagt að spurningin sé ekki hvort heldur hvenær það muni gerast.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.