flugfréttir
Cathay Pacific með augastað á Kaupmannahöfn
Cathay Pacific hefur fjórum sinnum verið valið besta flugfélag heims
Kaupmannahöfn er meðal þeirra áfangastaða sem flugfélagið Cathay Pacific er að skoða en félagið er stærsta flugfélag Asíu með höfuðstöðvar á Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong.
SAS og Finnair geta því átt von á samkeppni þar sem SAS flýgur til Hong Kong frá Kaupmannahöfn og Finnair frá Helsinki en Cathay Pacific
er einnig að skoða Stokkhólm sem áfangastað en þaðan flýgur SAS einnig til Hong Kong.
Cathay Pacific á von á 69 nýjum þotum á næstu árum en eftir áramót mun félagið fá sína fyrstu Airbus A350-900 auk þess sem félagið á von
á Airbus A350-1000 en A350-900 vélin þykir tilvalin fyrir flug frá Hong Kong til Evrópu.
Þá er félagið einnig að skoða aðra áfangastaði í Evrópu á borð
við Tel Aviv, Berlín og Munchen og þá er líka verið að skoða möguleika á flugi til Honolulu og Houston.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.