flugfréttir
Flugfreyja þénaði 120 milljónir með því að sofa hjá farþegum um borð
- Var gómuð á salerni og hefur verið rekin úr starfi
Flugfreyjan starfar ekki lengur hjá flugfélaginu
Flugfreyja hjá stóru flugfélagi í Miðausturlöndum var nýlega gómuð á salerni um borð í vél flugfélagsins þar sem hún stundaði kynlíf með einum farþega.
Eftir að flugfreyjan var yfirheyrð kom í ljós að hún átti að hafa þénað yfir 120 milljónir króna á 2 árum með því að bjóða
upp á „auka“ þjónustu um borð en samkvæmt sádí-arabískum fjölmiðli kemur fram að hún hafi stundað kynlíf með mörgum
farþegum sem höfðu greitt yfir 200 þúsund krónur fyrir hvert skipti.
Það skiptið sem flugfreyjan var gómuð á salerninu, sem var hennar seinasta flugferð með félaginu, hafði sá farþegi
greitt henni yfir 250.000 krónur en óvíst er hvort farþegar höfðu greitt með seðlum eða kreditkortum.
Ekki kemur fram hjá hvaða flugfélagi flugfreyjan starfaði en samkvæmt sádí-arabíska netmiðlinum Al Sadda kaus
flugfreyjan yfirleitt að fljúga langflug frá botni Persaflóa til Bandaríkjanna.
Þá er ekki vitað með hvaða hætti flugfreyjan nálgaðist farþegana en einn þeirra sagði að hún hefði tælt sig inn á flugvélasalernið. Flugfreyjan var umsvifalaust
rekin úr starfi um leið og upp komst um athæfið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.